NFco Tannbursti og Trjákvoðu Standur – Pirate Black
Tannburstarnir frá NFco brotna niður í náttúrunni ásamt pakkningunni. Handfangið eru búið til úr óerfðabreyttum maís og hárin eru úr næloni sem eru laus við BPA.
Description
NFco Tannbursti & trjákvoðu standur – pirate black
Tannburstarnir frá The Natural Family Co. eru einstaklega falleg hönnun sem bæði eru prýði á hvaða baðherbergi sem er og fara vel í hönd. Tannburstarnir skilja eftir sig mun minna plastfótspor en hefðbundnir tannburstar. Handfangið er framleitt úr óerfðabreyttum maís og hárin eru úr BPA fríu næloni.
Hárin eru einstaklega mjúk og henta því fullkomlega til að hreinsa tennurnar og vernda góminn um leið.
Umbúðirnar innihalda ekkert plast (glæra framhliðin er framleidd úr óerfðabreyttum maís) og bæði tannburstarnir og umbúðirnar brotna niður í náttúrunni (biodegradeable).
Notkun
Notið lágmarksþrýsting og burstið með hringlaga hreyfingum. Notið gjarnan með The Natural Family Co. tannkreminu.
Skiptið tannburstanum út fyrir nýjan á 6-8 vikna fresti
Skolið vel fyrir og eftir notkun
*Sótthreinsið reglulega
Innihaldsefni
Óerfðabreyttur maís og nælon hár án BPA
Umbúðir
Pappi og óerfðabreyttur maís
Upprunaland
Áströlsk hönnun
Flokkun
Almennt sorp. Hægt er að brjóta skaftið af og henda hausnum í almennt sorp en flokka skaftið með moltu.
Umbúðir flokkast sem almennt sorp.
Það tekur u.þ.b. 1 ár fyrir tannburstann að brotna niður í moltu heima við en u.þ.b. 90 daga í moltu framleiðslu.
Athugið: NFco tannburstarnir eru framleiddir úr óerfðabreyttum maís (100% corn starch non GMO), náttúrulegu efni sem er sterkt og hentar vel til persónulegrar notkunar, efnið hefur þó ekki sama styrk og hefðbundnir plast tannburstar. Burstið tennurnar ekki með of miklum þrýstingi, gott er að hafa í huga að tannlæknar mæla með lágmarks þrýstingi við burstun til að vernda tannholdið.
Additional information
Weight | 0.1 kg |
---|---|
Dimensions | 1 × 1 × 1 cm |