
Jack n’Jill er ástralskt fjölskyldufyrirtæki sem framleiðir hágæða tannvörur fyrir börn sem bæði eru umhverfisvænar og eiturefnalausar.
Tannburstarnir eru framleiddir úr óerfðabreyttrum maís sem gerir þá niðurbrjótanlega í náttúrunni (biodegradeable).
Tannkremin eru náttúruleg með lífrænum innihaldsefnum og fást í 5 mismuandi bragðtegundum, einnig bragðlaust. Þau innihalda ekkert “SLS”, flúor, rotvarnarefni né önnur skaðleg efni.
Tannkremin eru öll: Vegan – Óerfðabreytt – Flúorlaust – Án parabena – Glútenlaust – Án soja – Sykurlaust – Engin gervi bragð- eða litarefni – “Cruelty Free”
Umbúðirnar utan um tannburstana innihalda ekkert plast og eru því 100% niðurbrjótanlegar.